Heilbrigðiskerfið 2015
Í tengslum við stofnfund Landssambands heilbrigðisstofnana (LH) verður haldin ráðstefna á Grand hótel föstudaginn 25. júní kl. 13.00-16.30. Þar verður reynt að svara áleitnum spurningum um það hvernig heilbrigðiskerfið muni komast í gegnum niðurskurð og þrengingar sem framundan eru. Hvað þarf að breytast og hvernig, hvaða leiðir þarf að fara til að tryggja áfram góða þjónustu? Hvað er nauðsynlegt að gera varðandi sameiningar, samvinnu og/eða niðurlagningu stofnana?
Frummælendur leitast við að svara þessum spurningum og varpa sinni sýn á það hvernig heilbrigðiskerfið eigi að líta út árið 2015.
Dagskrá:
Kl .13:00Formaður Landssambands heilbrigðisstofnana setur ráðstefnuna
Kl. 13:10 Heilbrigðisráðherra: Álfheiður Ingadóttir
Kl. 13.30Landlæknir: Geir Gunnlaugsson
Kl. 13:45 Forstjóri Landspítala: Björn Zoega
Kl. 14:00 Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins: Svanhvít Jakobsdóttir
Kl. 14:15 Þingmaður og fyrrum heilbrigðisráðherra: Siv Friðleifsdóttir
Kl. 14:30 Þingmaður og fyrrum heilbrigðisráðherra: Guðlaugur Þór Þórðarson
Kl. 14:45 Lektor í heilsuhagfræði við HÍ: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir
Kl. 15:00 Kaffihlé
Kl. 15.15Panelumræður - Sigurður Guðmundsson, sviðsforseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ stýrir umræðum
Kl. 16:30 Ráðstefnuslit
Ráðstefnan er öllum opin en þátttaka tilkynnist á
Ekkert ráðstefnugjald.
Undirbúningsnefndin